Þjónustuskilmálar

(fyrir API aðgang að upplýsingum úr fyrirtækjaskrá)

1. Almenn ákvæði

Þessir skilmálar gilda um aðgang og notkun á vefþjónustu (API) sem Skatturinn, kt. 540269-6029, veitir.

Með skráningu og notkun þjónustunnar staðfestir notandi að hann hafi kynnt sér og samþykki þessa skilmála.

2. Lýsing á þjónustu

Þjónustan er rafræn vefþjónusta (API) sem veitir aðgang að upplýsingum úr fyrirtækjaskrá.

Gögn sem þjónustan miðlar eru opinber og byggja á upplýsingum sem tilgreindar eru í 4. gr. reglugerðar nr. 162/2006 um gjaldtöku fyrirtækjaskráa o.fl.

Rekstraraðili áskilur sér rétt til að breyta þjónustunni án fyrirvara, þar á meðal innihaldi hennar, virkni og aðgengi.

3. Aðgangur og auðkenning

Aðgangur að þjónustunni er bundinn við skráða notendur.

Notanda er úthlutað aðgangsupplýsingum, svo sem API-lykli, sem eru persónubundnar og óframseljanlegar.

Notandi ber ábyrgð á:

- öruggri meðferð aðgangsupplýsinga

- allri notkun þjónustunnar sem fer fram undir hans aðgangi

Óheimilt er að deila aðgangsupplýsingum með þriðja aðila.

4. Heimil notkun

Notandi hefur heimild til að nota þjónustuna til að sækja upplýsingar í samræmi við þessa skilmála og gildandi lög.

Notkun skal vera hófleg, málefnaleg og í samræmi við tilgang þjónustunnar.

5. Óheimil notkun

Óheimilt er að:

- framkvæma fjöldaútdrátt (bulk extraction), sjálfvirka söfnun eða speglun gagna úr þjónustunni

- selja, endurselja, miðla eða dreifa gögnum áfram til þriðja aðila, hvort sem er í óbreyttri eða breyttri mynd

- nota þjónustuna til að þróa eða styðja samkeppnisþjónustu

- yfirhlaða, trufla eða raska virkni þjónustunnar

- fara framhjá öryggisráðstöfunum eða aðgangsstýringum

6. Gögn og uppruni þeirra

Gögn sem þjónustan veitir:

- eru fengin úr opinberum skrám fyrirtækjaskrár

- eru veitt í samræmi við ákvæði 4. gr. reglugerðar nr. 162/2006

Gögn eru birt „eins og þau eru“ (e.“as is“).

Rekstraraðili ábyrgist ekki að:

- gögn séu ávallt rétt, fullkomin eða uppfærð

- gögn henti til tiltekins tilgangs

7. Endurnotkun gagna

Gögn sem notandi sækir í gegnum þjónustuna eru eingöngu til eigin nota notanda.

Óheimilt er að:

- Selja, endurdreifa eða miðla gögnum áfram til þriðja aðila

- birta gögn opinberlega sem sjálfstætt gagnasafn

Heimilt er að nota gögn sem hluta af innri vinnslu eða þjónustu notanda, að því gefnu að:

- gögnin séu ekki megininntak sjálfstæðrar gagnaveitu

- ekki sé unnt að endurheimta upprunaleg gögn úr kerfum notanda

Rekstraraðili áskilur sér rétt til að fylgjast með notkun til að tryggja að farið sé að þessum skilmálum.

8. Persónuvernd

Þjónustan kann að miðla upplýsingum sem teljast persónugreinanlegar.

Notandi ber ábyrgð á að notkun slíkra upplýsinga sé í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Nánari upplýsingar er að finna í persónuverndarstefnu rekstraraðila, (www.skatturinn.is/personuverndarstefna).

9. Ábyrgðartakmörkun

Rekstraraðili ber ekki ábyrgð á:

- tjóni sem hlýst af notkun þjónustunnar

- beinu eða óbeinu tjóni vegna ónákvæmra eða ófullnægjandi gagna

- tímabundnu rofi eða skertu aðgengi að þjónustunni

10. Tæknilegir notkunarskilmálar (API)

10.1 Kvótar (quota)

Notkun þjónustunnar er háð notkunarmörkum sem rekstraraðili ákveður hverju sinni. Gildandi notkunarmörk eru skilgreind í grunnupplýsingum vöru á vef.

Ef notandi fer yfir skilgreind mörk getur:

- aðgangur verið tímabundið takmarkaður

- beiðnum verið hafnað

10.2 Hraðatakmarkanir (throttling)

Þjónustan er varin með hraðatakmörkunum til að tryggja stöðugleika.

Ef notandi sendir of margar beiðnir getur þjónustan:

- hafnað beiðnum (t.d. með HTTP 429 villu)

- takmarkað aðgang tímabundið

Notanda ber að hanna kerfi sín þannig að þau virði þessar takmarkanir.

10.3 Aðgengi og þjónustustig

Rekstraraðili leitast við að tryggja áreiðanlegt aðgengi að þjónustunni.

Engin ábyrgð er þó tekin á:

- samfelldum rekstri

- tilteknu þjónustustigi (SLA)

Þjónustan getur verið óaðgengileg tímabundið vegna:

- viðhalds

- uppfærslna

- bilana

10.4 Breytingar á þjónustu

Rekstraraðili getur hvenær sem er:

- breytt API-endapunktum

- breytt gagnaskilum eða sniði

- bætt við eða fjarlægt virkni

Eftir því sem unnt er verður notendum tilkynnt með tölvupósti um verulegar breytingar.

10.5 Öryggi

Notandi skal:

• tryggja örugga meðferð aðgangsupplýsinga

• koma í veg fyrir óheimilan aðgang

Rekstraraðili getur:

- afturkallað aðgang

- lokað þjónustu tímabundið ef grunur er um misnotkun

11. Lokun og uppsögn

Rekstraraðili getur lokað eða takmarkað aðgang notanda án fyrirvara ef skilmálar eru brotnir.

Notandi getur hætt notkun þjónustunnar hvenær sem er.

12. Breytingar á skilmálum

Rekstraraðili áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum.

Nýir skilmálar taka gildi við birtingu.

13. Lög og varnarþing

Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum.

Rísi ágreiningur skal hann rekinn fyrir íslenskum dómstólum.

Skilmálar þessir taka gildi 27. apríl 2026, útgáfa nr. 1.0.

Sækja um API lykil

Vefþjónustur í boði